Spælingar: John Legend

miðvikudagur, maí 09, 2007

John Legend

Ásamt því að vera gullfallegur hlýtur þessi maður að vera snillingur. Maður sem fær gospelkóri til þess að syngja með sér (í laginu I can change) you gotta believe me !. Þú verður að trúa mér þó ég hafi haldið fram hjá þér get ég nú breyst og ég elska þig mest af öllum gellunum mínum. Þú verður að trúa mér!!!! Með sannfæringarkrafti gospelkórs og klappi hans.
Þetta fallega lag kemur á eftir lofkvæði miklu um spennu framhjáhalds með viðlaginu hún þarf ekki að vita!. Svona rómantíker sem vill fara hægt í sakirnar (í take it slow) þar við séum bara venjulegt fólk sem vitum ekki hvað við viljum og að lífið er ekkert ævintýri eða bíómynd er ekki að finna á hverju strái.
Ég get breyst! Ég er til í að breytast. Hver hefði haldið að ég stóri gaurinn og hórmangarinn væri til í að breytast. Ég meina það ég get breyst en bara fyrir þig, þú ert þannig kvenkynsvera. Já ha bara eins og Romeo og Júlía.

Hann er líka geðveikt rómantískur á djamminu: ég get ekki gengið beint en stelpa ég sé að þú ert fín fyrir mig. Ég er með lyklana mína ef þú ert tilbúin að fara. Ég sé þú ert með gaurnum þín, það er allt í lagi fyrir mig. Ég lofa því þú lítur ok út.
Þessi diskur Get Lifted (Hrífstu) er bara svo góður brandari að allar stelpurnar hljóta að hrífast og falla fyrir goðsögninni.

Helga
og jú ég er víst að læra!
og það eru bara 2 dagar eftir í helvíti!!! :D

7 Comments:

Blogger VBG/eög/HÓ said...

gat ekki bloggað fallegu myndinni með... :(

12:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ótrúlega sætur í sér greinilega þessi gaur. Gott að hann getur sannfært stelpurnar um að þær séu nú örugglega nógu sætar fyrir hann, rorrandi fillibyttu sem varla stendur í fæturna.

GANGI ÞÉR VEL Á SÍÐUSTU METRUNUM!

1:26 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ójá, myndi pottþétt falla fyrir þessum ... hvað er rómantískara en þetta???

2:12 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Verð einfaldlega að segja einhverjum þetta: ég nota orðið örtyppi í ritgerðinni minni!!!!!! ahahahahahaha!

2:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ég fell alltaf fyrir hórmöngurum!

7:12 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Bíddu, Helga, skiptirðu um ritgerðarefni? Í hvaða samhengi kemur ÖRTYPPI inn í ritgerðina...?!!

Flott orð annars :P

9:51 e.h.  
Blogger VBG/eög/HÓ said...

Hehehe já ákvað að skrifa um typpi þar sem þau eru mér svo hugleikin...
heheh
nei er að skrifa um millikyn eða kynferðistvíræðni.... eða bara smá sko
fjallar um hvernig við skilgreinum kyn og hversu þröng sú skilgreining er...

11:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home