Spælingar

föstudagur, september 22, 2006

Ókei.
Það er opinbert.
Ég er að fara yfir um.

Seinasti dagur fínpússningar og yfirferðar er í dag og ég er alltaf að sjá eitthvað sem má laga. Hef ekki tíma í að gera allt upp á nýttt svo kæruleysið verður að fá að komast að. Veit bara ekki hvort það fái það. Hörð barátta er í gangi á milli smámunasemispúkans og kæruleysispúkans. Kaffidrykkja hefur farið allverulega yfir mín normalmörk og ég er að þróa með mér einkenni "restless leg" þar sem annar ef ekki báðir fætur iða undir skrifborðinu allan daginn.
Ég vona að ég eigi eftir að hitta ykkur aftur kæra fólk.
En það gæti verið að ég liti þá svona út.
Þið vitið þá af hverju.


Góðar stundir.
//eög - hin heilbrigða

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hahaha!!!
Elsku ellusinn minn, getur verið að BA standi fyrir Be Aware!!?

Allavega til hamingju með að þetta sé að verða búið!!

hlakka til að hitta þig!!

10:35 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

þessi mynd er snilld!
ogh ég sé alveg hvernig þér líður út frá myndinni!!!

til hamingjku elskan mín!
þú ert snillingur!!!!!!

hafðu það æði
knús

12:47 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Æ þú ert ÆÐI!!! Ég hlakka svo til að hitta þig. Just six days!! :D

1:27 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

g er sem sagt Guðrún

1:27 e.h.  
Blogger Jónas said...

Jesú mína! Af hverju ertu að mála þig svona mikið fyrir ritgerðarskrif? Hjálpar það? kannski að ég ætti að prófa það.

4:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Að þú skulir setja þessa mynd á netið, svo allir fái að sjá, sýnir mikið sjálfstraust og hugrekki.

6:54 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home