Spælingar: Tilvistarkreppa

fimmtudagur, júní 14, 2007

Tilvistarkreppa

Hvað er tilvistarkreppa?
á tímamótum í lífinu þjást margir af hinni svokölluðu tilvistarkreppu.
Ég er ein þeirra.
Til þess að kljást við þessa leiðinda kreppu hef ég verið að velta fyrir mér af hverju hún stafi og hvað tilvistarkreppa sé eiginlega. Þegar einu tímabili líkur í lífinu tekur eithvað alveg nýtt við. Nýju tímabili ætti að fylgja ný ég ekki satt? Kreppan felst einmitt að miklu leiti í því að sjálfsmynd mín er takmörkuð við gamla tíma og gömul verkefni. Ég gleymdi að sjálfsímynda mér mig í framtíðinni að kljást við önnur verkefni og á öðrum stað í lífinu. Annar þáttur í þessari sjálfsköpuðu og sjálfsvorkunnar kreppu er afleiðing þess að kona gleymir að gera væntingar til lífsins og hafa drauma. Draumarnir eru þarna en þeir fá ekki að komast upp á yfirborðið og gegns sínu hlutverki sem meðvitaðir leiðarvísar sem kona notar til þess að leiðbeina sér í gegnum lífið. Ef ég leifi mér að dreyma og vona þá verða sigrarnir svo iklu sætari því þá veit ég að ég ætlaði mér þá og þeir eru mér að þakka. Til þess að leifa mér að dreyma verð ég hinsvegar að geta ímyndað mér mig í framtíðinni.

jæja ætla að fara og finna mig í framtíðinni...


ciao

Helga

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ég fann þig og núna þarft þú bara að finna þig ;)+

1:55 e.h.  
Blogger Jónas said...

Veistu Helga, þetta er eins og talað út úr mínu hjarta. Þetta eru orðin sem ég var að leita að. Ég ætla að leyfa mér að dreyma... sjálfsímynda mér.

9:21 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Veit nákvæmlega hvað þú ert að meina ... stundum finnst konu að hún ætti að vita hvað hún vill verða "þegar hún verður stór" ...

Til hamingju með áfangan ... :-)

2:34 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home