Spælingar: Höggvin í herðar niður eða hausinn af

mánudagur, maí 05, 2008

Höggvin í herðar niður eða hausinn af


Las grein í danska dagblaðinu Information sem fjallar um aukið ofbeldi gegn konum í Írak. Þar eru nefnd dæmi um að á seinustu fimm árum hafi kvennadráp, "heiðursmorð", nauðganir og annað ofbeldi stigið til muna. Hin nýja ríkisstjórn hefur engin úrræði fyrir þær konur sem verða fyrir ógnunum og árasarmenn þeirra eru ekki dregnir fyrir dóm. Lagaleg þversögn ríkir í landinu þar sem Sharia lögin eru notuð til að grafa undan lögum landsins, og þá sérstaklega mannréttindi kvenna. Kúrdíska þingkonan Narmin Osman segir heiðursmorð ekki vera alvöru glæp í augum þessarar ríkisstjórnar. Það sýni sig á aðgerðaleysi þeirra við fréttum af hálshöggnum og grýttum konum.Osman segir erfitt að lýsa því hversu slæmt ástandið sé nú og hversu mikið það hafi versnað á seinustu fimm árum. Dæmi séu um að konur kveiki í sér til að mótmæla og fleiri konur svipti sig lífi vegna stöðugra hótana.

Sem sagt. Eftir innrás Bandaríkjahers og bandamanna þeirra (muna, Ísland er með í för) og þeirrar ríkisstjórnar sem kom í kjölfarið, hefur öfgamönnum vaxið ásmegin og og þurfa konur nú að súpa seyðið af því. Þau morð sem skráð hafa verið, og eru að mati starfsfólks mannréttindasamtaka í landinu líklega enn fleiri þar sem fæst eru skráð sem slík, eru morð þar sem konur hafa verið drepnar meðal annars fyrir að virða ekki dresskóða sharialaganna. Einnig er dæmi um að 18 ára stúlka hafi verið drepin fyrir það að hafa orðið ástfangin af breskum hermanni sem var að "þjóna föðurlandi hennar" í suðurhluta landsins.

Þau öfl sem átti að útrýma eru því nú orðin sterkari en fyrir innrásina.

Frábær árangur!!!

Kveðja,
Elín Ösp


p.s.
-Cake or death?
-Cake please.
-Oh, sorry we´re out of cake.

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ja gudi se lof fyrir alheimslogreglu bandamanna! Var einmitt ad horfa a thatt um munadarlaus born i irak (sem hefur fjolgad oheyrilega sidan 2003) a al jazeera.....kona verdur ekki beint bjartsyn....

kv,
valdis bjort

1:19 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Kræst olmætí!
Er þetta blogg nú alveg farið til fjandans?
Sú eina sem segir eitthvað er sú sem er í ferðalagi í Langtiburtistan en sú gefur sér samt tvær sekúndur til að láta vita að hún hafi lesið þetta.... ég er bara enn pissfúl! Segið alla vega túrilú þótt ekki sé önnur tjáning í gangi....aight?

Takk esskurnar, það væri vel þegið að þið þegið ekki alveg.
//eög

8:28 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

túrílú!

12:01 e.h.  
Blogger Guðrún Vald. said...

tú....rílú!

10:21 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

heyrðu!! það eru guðdómlegar myndir inni á síðunni hennar Guðrúnar af tveimur litlum rassálfum sem eru að drepast úr sætleika.
Ég beinlínis ætlast til að sjá dálítið af jesús og guð hvað þau eru ótrúlega sæt...upphrópun í kommentakerfi guðrúnar.

og koma svo!!!

8:34 f.h.  
Blogger Guðrún Vald. said...

Ég þakka þessa auglýsingu Sigga mín ;)

1:49 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hæ ellusinn minn, varð bara að tjá að Persepolis er algjör snilld!! Mig langar að eiga þessa mynd því þessi kvenkarakter er bara hvetjandi!!
kveðjur,
valdís björt

11:39 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home