Spælingar

fimmtudagur, júní 29, 2006


Svör við þeim sem segja að útlendingar taki vinnu af Íslendingum, úr skýrslu nefndar um aðlögun útlendinga, gefin út af Félagsmálaráðuneyti:

- Auðvelt er að rökstyðja kosti þess að fá fólk hingað til starfa frá öðrum heimshlutum. Rannsóknir í Bretlandi hafa sýnt fram á þá staðreynd að innflytjendur skapa fleiri störf en þeir „taka frá innfæddum“. Þetta byggist á því að fjöldi starfa í sveigjanlegu hagkerfi er ekki gefinn. Fólksfjölgun hefur það í för með sér að vinna þarf fleiri verk og störfum fjölgar í þeim greinum sem fyrir voru, auk þess verða fleiri nýjar greinar til. Aukinn fjöldi fólks leiðir samkvæmt því til þess að ný tækifæri myndast á vinnumarkaði. Íslenskir hagfræðingar hafa haldið sömu tilgátum á lofti.

- Eftirlaunaaldur í Danmörku hefur sífellt færst neðar og hlutfall þeirra sem hætta störfum vegna aldurs fer ört vaxandi. Samhliða þessari þróun minnkar hlutfall þeirra sem greiða skatta. Bent er á að til þess að mæta þessum vanda sé ein leið að hækka skatta um 5%. Önnur og betri leið að mati Dana felst meðal annars í því að stuðla að auknum fólksflutningum til Danmerkur og að hraðari aðlögun útlendinga á dönskum vinnumarkaði.

Svo allt tal um að útlendingar séu að hafa af fólki vinnu og eyðileggja allt er að sjálfsögðu bara bull.

Einn fróðleiksmoli að lokum:
Íslendingar búsettir erlendis eru mun fleiri en erlendir ríkisborgarar á Íslandi en þeir voru 10.180 í árslok árið 2003. Á sama tíma voru 28.475 Íslendingar búsettir erlendis.

Góðar stundir.
//eög

4 Comments:

Blogger Guðrún Vald. said...

Og hananú!!

3:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

eru norðurlandabúar ekki bara að breytast í einskonar VIP klúbb, þar sem allt á að vera svo æðislegt og þar sem allir vilja vera en dyraverðirnir eru hálvitar?

12:58 f.h.  
Blogger Jónas said...

Norðurlöndin eru Sirkus. Mann langar alltaf inn, maður skemmtir sér alltaf svo vel og allt er svo frábært, en maður tekur ekki eftir því fyrr en maður er kominn út hvað gólfið er skítugt.

ps.
Ég hefði áhuga á að læra á píanó ef það væru til nógu stór.

9:47 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Góðir punktar kæru mannfræðisystkin!

p.s. eru píanó lítil?

2:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home