Spælingar

mánudagur, október 30, 2006

mæli eindregið með þessar síðu:

www.stadalryni.blogspot.com


kv,
valdístilfólksins

ps.mæli svo með því að fólk hópist niður í bæ og mótmæli þessum nauðgunum sem þar hafa verið gerðar síðustu vikur!!!! Gæti hugsast að með því að sýna hversu reið við eru yfir þessu öllu saman að gaurarnir yrðu hræddir. Helst myndi ég vilja sjá reiða karlmenn mótmæla þessum viðbjóði!! Svo ég skora á alla karlmenn sem þetta blogg lesa að mótmæla þessum hrottum með einum eða öðrum hætti og sýna mér þannig að þeim sé ekki sama!!!

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er mjög góð síða!
Og ég er sko alveg sammála með mótmælin, ég mæti! Mér finnst líka eins og nauðganir séu of oft málefni kvenna og það sé kvenna að mótmæla þeim. Auðvitað er þetta mál allra og nú ættu allir að sameinast gegn þessum viðbjóði!!!

3:52 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Tek undir það! Karlar almennt eiga að láta nauðganir og tilraunir til nauðgana miklu varða þar sem þeir eru um leið að vissuleiti stimplaðir sem hugsanlegir gerendur.
Hrós til Karlahóps Feminístafélagsins fyrir þeirra framlag til umræðunnar!

3:57 e.h.  
Blogger VBG/eög/HÓ said...

þessi karlahópur er náttúrulega bara hrein snilld!! Mér finnst það "alvöru" karlmenn!!;) Þeir eru líka að hafa áhrif...bróðir minn gengur meira segja með barmmerki frá þeim sem á stendur NEI!!!

4:07 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Góð síða! :)
einfaldar ábendingar en þvímiður líklega þarfar...
Eru einhver mótmæli framundan eða?
ég er að verða brjáluð á þessari umræðu. Allir telja mig geðveika því ég ferðast um bæinn ein
oh!hvernig væri að beita öllu ljósi að gerendunum? öllu!

5:04 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

konur eru yfirleitt einar þegar þeim er nauðgað, samkvæmt ýmsum rannsóknum sem ég hef lesið og því sem Eyrún á neyðarmóttökunni sagði í viðtali á dögunum.
Hún sagði margt merkilegt fyrir þessa orðræðu sem einblínir um of á hegðun kvenna:
1) ef konur eiga að halda sig heima þá eru um 70% nauðgana sem eiga sér stað í heimahúsum
2) ef konur eiga að drekka minna eða ekkert yfir höfuð þá eru um 70% nauðganafórnarlömb edrú þegar þeim er nauðgað
3) ef konur eiga að halda sig með vinum sínum þá eru um 80% gerenda í nauðgunarmálum svokallaðir vinir eða kunningjar
þannig að það er voða þýðingarlítið að fara ætlast til þess að konur hegði sér öðruvísi þar sem það breytir engu og hvers vegna er það jú því eins og Guðrún Margrét segir er nauðgun karlmannlegt fyrirbæri!!!
af 1400 tilkynningum síðan neyðarmóttakan var stofnsett þá hafa verið tilkynnt tvö mál þar sem konur eru gerendur
ég segi bara eins og sannur sjálfstæðisplebbi: tölurnar tala sínu;)

7:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk takk fyrir upplýsingarnar!

GERENDUR EIGA AÐ BERA ÁBYRGÐ Á ÞVÍ SEM ÞEIR GERA!!!
Veit ekki af hverju fólki finnst það svo skrýtið.

Að kenna konum um nauðganir er eins og að kenna borgurum í Falluja um það að þeir urðu fyrir loftárás Bandaríkjamanna....BÆÐI JAFN FÁRÁNLEGT OG ÓRÉTTLÁTT!

8:09 e.h.  
Blogger Jónas said...

Þetta er áhugaverð síða. Ég sá margar af þessum fréttum og hugsaði ekkert... hmm. Sniðugust finnst mér eldhúsinnréttingaauglýsingin þar sem berbrjósta konan bíður kaffi og vöfflur.

12:49 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home