Herrar eru líka frúr
Menn eru líka konur!
Hjálpum karlmönnum! Hvers eiga karlmenn á Íslandi að gjalda?! Vigið er að þeim úr öllum áttum. Leifum karlönnum að vera konur!
Hér eftir ávarpa ég föður minn og aðra karlmenn sem ég ber virðingu fyrir ávalt frú, þeir eiga það skilið!
Í morgun sagði ég til dæmis: "góðan dag frú faðir" og mér líður strax betur.
Frú Egill Helgason hefur ekkert að gera greyið. Hjálpum honum.
Hjálpum Pétri líka, hann er móðgaður.
Annars er ég búin að vera á leiðinni að blogga svo lengi að ég er með of margar hugmyndir í kollinum, veit ekki hvar ég á að byrja!
Eitt sem cvakið hefur athygli mína undanfarið:
Margir hafa tekið sig saman undanfarið og vakið athygli á þeim mikla vanda sem karlmenn standa frammi fyrir á íslandi. Þeir hafa engar hórur svo greyin neyðast til að nauðga. Þykir mörgum að þarna þurfi bót á.
Já, ég hef líklega borið of mikla virðingu fyrir fólki hingað til og hef ákveðið að hætta því hér með. Fólk er fávitar upp til hópa. Ps. til að baktryggjamig: ég hef ekkert á móti Agli erkiengli, ehem (allavegana ekkert meira ámóti honum en hann á móti konum).
Að vissu leyti virði ég ákvörðun skemmtistaðareiganda um að meina karlmönnum sem ekki haga sér aðgang að staðnum. EN afhverju hefur engum dottið þetta í hug áður?!?!?!?! Jú vegna þess að íslenskir karlmenn líkt og skemmtistaðareigandinn sjálfur standa með bræðrum sínum þótt þeir hagi sér eins og hálfvitar og eyðileggi kvöld margra stúlkna og kvenna. Já ekki leyfa útlendingunum að vanvirða stelpurnar okkar segja þeir, við sjáum um það! Halelúja!
Samkvæmt rannsóknum er ofantaliði allt mér og mínum líkum að kenna. Svo ég segi sorry! Eða hvað? Það er huggun harmi gegn að þrátt fyrir vísbendingar um annað er ég eftir allt ekker svo heimsk, samkvæmt rannsóknum sko.
Afhverju geta blöðin ekki sagt mér meira um karlmenn?! Er stórt typpi merki um tilfinningagreind karlmanna og stór eyru merki um langt líf? Hvað gefur vísbendingu um trygglyndi, typpastærð eða annað spennandi? Ég þarfnast meiri traustrar þekkingar um þetta mál! Mbl: þetta er áskorun!
Annars ætla ég að kljúfa mig frá tvíhyggjunni. Ég er hvorki kona né maður, né kona sem er maður, heldur mona. Ekki móna lísa samt.
Mér finnst Frida líka flottari en Mona, en ég óttast að hún sé ekki sátt við þetta!
Ég vil benda á eina af mörgum góðum greina BB snillings. quote frá Brissó: "frelsið er yndilegt, ég fer í vax eins og ég vilji það". end of quote. Amen Brissó! Ég brosi líka oft til fávita eins og ég hati þá ekki.
Ég skrifaði blogg um daginn sem ég frestaði birtingar. Enda var ég svo reið á þeim tímapunkti að enn ríkur úr wordskjalinu sem felur færsluna. Já Femínísk hryggð kemur oft aftanað manni...
Og ekki má kona missa skap sitt, það er kellingavæl eða dýrslegt brjálæði beint frá leginu (jafn ógeðslegt og tíðarblóð).
Shit verð að þjóta gleymdi mér smá!
Dagskráin er þétt...
Ein stór ást til ykkar sem ekki hatið konur ég elska ykkur!
Herra Helga

9 Comments:
Hallelúja og AMEN!!! Þetta er það sem ég hef verið að bíða eftir! Smá upphristingur!! Júhúvúvú!
Menn eru sko aldeilis líka konur og þetta kjaftæðisnauðgunarútlendingadóteríbönnumþeiminngöngu er tja...einmitt.
Hvet þig til að setja hitt rjúkandi heita vörd-skjalið hér inn til birtingar. Því ekki? Jú, fólk gæti haldið að þú værir nú bara á túr og því vanhæf til að setja fram rökhugsun vegna truflunar frá hormónum. Blöh. Hver er ekki undir áhrifum? Frá hormónum. Margt virðist nú vera réttlætt og/eða afsakað út frá testósterónrónróni eða estrógenónónónósi...
Jiddúddiminn og allir hans félagar. Var að lesa allar greinarnar sem þú vitnaðir í og hvað er að gerast í þessum heimi hér... við förum fjandans til.
Einu næ ég ekki: "Nauðgunarfantasíur í einhverri mynd eru þekktar bæði hjá körlum og konum og hafa verið lengi" segir einn. Er það virkilega? Hefur einhver lesenda hér fantaserað um að láta nauðga sér...?
Skil ekki alveg............... en ég ætti samt að skilja meira en margar, því ég er jú dökkhærð og með stórar mjaðmir...
ég biðst afsökunnar fyrir hönd okkar að hafa nauðgað því ég fann enga hóru.. en ég get víst ekkert að því gert, því ég er karlmaður.... eða hvað?
„Það hafa margir karlmenn sagt það við mig að þeir sé þeirrar skoðunar að það eigi að leyfa vændi til að “þjónusta” og svala kynhvöt þeirra sem eiga ekki annara kosta völ.“ (komment af bloggi Egils Helgasonar)
Við verðum bara að átta okkur á því að úti í samfélaginu er hópur af karlmönnum sem enginn vill ríða. Eiga þeir þá ekki að fá að ríða? Auðvitað, allir verða að fá að minnsta kosti smá að ríða. Hér ríkir frelsi! Það eru bara kommúnistar og arabar sem þurfa að líða skort.
Eins og staðan er í dag eru nauðganir eina leiðin út en ég held að hægt sé að leysa þetta leiða vandamál með því að hóa í nokkrar konur og láta þær sofa hjá þessum óheppnu óriðulegu mönnum. Þær geta ekki sagt nei, viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér og svo fá þær auðvitað borgað fyrir (ekki mikil kvöl það). Að lokum myndu þeir svo borga umsjónarmanni kvennanna ákveðna þóknun (sem að sjálfsögðu yrði skattskyld) og þannig myndir óriðni hópurinn hætta að nauðga og íslenskar konur hlaupið óhræddar á handahlaupum út í lífið! Allir græða.
ath. Ef einhver þekkir mig ekki þá er þetta kaldhæðni.
Ég er líka mona. Mér finnst það snilldarorð. Verst að það er aðför að íslenskri tungu, eins og allar breytingar.
Vá ég held að þetta blogg og ekki síður kommentin hafi bjargað geðheilsu minni. Búin að eyða dálítið miklum tíma inná moggabloggi sko...
Gott blogg, eins og skrifað úr mínu hrakta hjarta!! Held stundum að blessuð kynjagleraugun muni ganga af mér dauðri, þori samt ekki að leggja þau niður!
ps. af hverju eigum við að bera virðingu fyrir mönnum sem bera enga virðingu fyrir okkur? Nenni ekki að vera alltaf kurteis og hlýðin við fífl virkar hvort sem er ekki!
mamma mín "skilur" hvað egill helgason er að segja og telur mig vera að rangtúlka...
Ég er svo æf að ég get ekki sagt neitt. Röddin er bara að gefa sig
Takk öll fyrir góð viðbrögð :)
Já ótrúlegt hvað karlmenn sjálfir geta haft litla trú á kynbræðrum sínum...
Og Sigga úff ég vorkenni þér! mamma mín skilur einmitt ekki þetta réðherra/frú dót finnst það bara bull... það fer afar mikið í mig
Skrifa ummæli
<< Home