Grýla og Freud
Var að hugsa um Grýlu, vegna þess að jólin verða pottþétt komin
áður en maður veit af, en samt ekki í samhengi við jólin beint.
Ég fór að hugsa að ef Freud væri enn á lífi og enn að spæla myndi ég færa honum (með djúpstæðri þökk fyrir alla kvenfyrirlitninguna sem hann hefur boðað) eintak af sögunni um hana Grýlu því hún er svo freudísk eitthvað.
Förum aðeins yfir þetta, því það er svo tómlegt að spæla einn (stundum). Sumir halda því fram að Grýla hafi verið frjósemisgyðja hérna áður fyrr, erfitt að sjá það fyrir sér núna..eitthvað gerðist fyrir aumingja Grýlu og hún fór að ræna annarra manna börnum og nærast á þeim (kannski því karlinn var svo leiðinlegur og latur) í stað þess að næra þau. Hún eignaðist sín eigin sem hún lét vera að éta og þeir, þessi grey, ólust upp og nærðu innra með sér allt að því meðfætt samviskubit yfir gjörðum móður sinnar því þeir voru soddan barnakarlar. Þeir flúðu móður sína reglulega, niður í mannabyggðir, undir því yfirskini að stríða, ræna og rupla (og reyna að þóknast móður sinni) en uxu uppúr því og reyna nú að bæta gjörðir sínar með því að gefa börnum gjafir, allt frá mandarínum til ípóða og heilar 13 gjafir allt í allt.
En það þýðir hinsvegar ekki að þeir séu lausir undan eyðileggjandi áhrifum geðsjúkrar móður sinnar. Þeir eru fullvaxta einstaklingar en ferðast helst í hópum eða einir í myrkri og hafa aldrei verið við kvenmann kenndir. Þeir koma í bæinn einu sinni á ári en skríða fljótt aftur upp í hellinn til mömmu. Þeir eru fullkomnlega háðir henni með allt, jafnvel þó hún sé dauð (eins og sumir halda fram) lifa þeir enn eins og hún standi yfir þeim. Greyin flækjast milli tveggja heima, geðsjúkan heim Grýlu þar sem þeir þræla undir ofbeldisfullum hæl hennar og mannaheima þar sem þeir eru nú þekktir sem ljúfir óþekktarormar í fornum klæðum sem elska kex og volga mjólk. Spurningin er hvort þeim tekst, nú þegar Grýla er kannski dauð, að brjótast undan áhrifum móður sinnar og komast til manns (sérstaklega þar sem amerískur frændi þeirra, sem byrjaði sem fátækur drengur á Norður Pólnum en rekur nú rosa buisness út um allan heim, hefur leyst þá af hólmi..svo rauður og kapítalískur á sama tíma).
Þessi litla dæmissaga hefði getað hjálpað Freud að rökstyðja kenningar sínar um eyðileggjandi áhrif kvenhormóna á karlmennsku en hver veit nema þetta nýtist einhverjum neó-freudum....
sólskinskveðja úr Hólminum,
Valdís Björt
ps. þessi spæling gæti virkað svolítið spes þar sem ég hef ekki talað mikið við lifandi fólk (nú eða dautt) síðustu daga.

8 Comments:
Þetta er mjög einkennilegt, ég var einmitt að ræða jólasveinana núna fyrir nokkrum dögum...en í aðeins öðru samhengi þó. Er jólafílingur í sólinni?
En þetta er alveg satt, Grýla og aðrar konur hafa greinilega mikinn eyðileggingarmátt á karlmenn. Ég var einmitt að lesa í uppáhaldsbókinni minni, Continuum Concept, að mæður sem ekki voru elskaðar af sínum mæðrum geri syni sína að hommum með því að krefjast óeðlilegrar ástar frá þeim með því að leika litlar stelpur. Ég er að hugsa um að gerast lítil stelpa og krefja Torfa um móðurlegar ástir og athuga hvort hann verði ekki hommi.
vá þetta var rosalega spæling. Af hverju ertu ekki bókmenntafræðingur? Þú myndir slá í gegn þar kona ;-)
nú er ég full og þori að segja að ég bara elska ykkur ég meina hvap annað er að elska.....?!! kannski nýja diskinn með Róisin Murphy...annað lítið, lítið ég segi ykkur...og eg er drottinn!!
Kreisøi inn the breinhaouse woman...verd ad gjøre svo vel aå hugsa tetta til enda...
Eog føreyjingur
hérna...fulla kona...elskarðu mig líka?
stelpan mín fílar Roisin Murphy, elskarðu hana líka þá?
Hver er þessi fulla kona? Og hvern elskar hún?
aldrei hefði ég trúað því að ég ætti eftir að grípa hana valdísi mína í freudískum pælingum...
Er Freud Leppalúði?
Skrifa ummæli
<< Home